 |
|
|

Vefsíðu dýralæknastofunnar er ætlað að veita dýraeigendum fræðslu og upplýsingar varðandi gæludýr og heilsufar þeirra. Dýralæknir, Dagfinnur, dýralæknar, dýralækningar, dýralæknastofa, dýralækningastofa, dyralaeknir, dyralaeknar, dýraspítali, gæludýr, gæludýrafóur, gæludýravörur, hundasjampó, hundasjampo, gæludýrasjampó, kattafóður |
|
|
 |
Hundar í bíl.
-
Flestir hundar hafa gaman af að ferðast í bíl, og þegar hundur yðar er orðinn vel vaninn, þá hafið þér líka ánægju af að hafa hann með yður. Hvolpar eru oft bílveikir, svo ekki er vert að vera lengi í einu fyrst í stað. Ef hann á vanda til bílveiki er gott ráð að leggja hann á gólfið þar sem útsýnið getur ekki haft truflandi áhrif á hann. |
Ef langferð er nauðsynleg, stöðvið bílinn eins oft og hægt er meðan á ferðinni stendur. Flestir hundar læknast af bílveiki.
Á bílastæði .
Þegar hundar eru skildir eftir einir í bíl, skal farið að öllu rmeð gát. Í fyrstu skulið þið ekki reyna það nema smástund í einu, vegna þess að hvolpar og ungir hundar verða oft skelfingu lostnir, ef þeir eru skildir eftir einir í bíl. Það getur verið gott að skilja eftir einhverja flík hjá honum, eins og t.d. peysu, sokk eða jafnvel skó, sem gerir það að verkum, að honum finnst þér vera nálægur. Smátt og smátt sættir hann sig betur við lengri biðtíma, svo framarlega sem þér látið hann aldrei vera svo lengi einan, að hann verði æstur og hræddur. Hafið rifu á glugganum til þess að hann fái nægilegt loft. Á veturna er það tiltölulega auðvelt að hlúa að honum með ábreiðu, en á sumrin er mikil hætta á því að honum verði of heitt, en hundar eru mjög viðkvæmir fyrir hita. Reynið umfram allt að finna skuggsælan stað, til þess að leggja bílnum. Jafnvel þó skýjð sé, þegar þér skiljið við hann, getur rofað til og sólin farið að skína og það snögghitnar inni í bílnum á skömmum tíma. Þetta er alvarlegt vandamál fyrir hundaeigendur í bílastæðisvandræðum nú á dögum. Það er ekki hægt að opna gluggana nægilega mikið og væri það gert, gæti hann stokkið út og það er ekki öruggt að binda hann fastan með ólinni inni í bílnum, þar sem hann gæti kyrkt sjálfan sig eða hengt
|
Dýralæknir, Dagfinnur, dýralæknar, dýralækningar, dýralæknastofa, dýralækningastofa, dyralaeknir, dyralaeknar, dýraspítali, gæludýr, gæludýrafóur, gæludýravörur, hundasjampó, hundasjampo, gæludýrasjampó, kattafóður |
|
|
|
Örmerking katta. Smelltu hér til að skrá. Kisur sem vantar heimili Týnd dýr

Hundaskóli Dýralæknir, Dagfinnur, dýralæknar, dýralækningar, dýralæknastofa, dýralækningastofa, dyralaeknir, dyralaeknar, dýraspítali, gæludýr, gæludýrafóur, gæludýravörur, hundasjampó, hundasjampo, gæludýrasjampó, kattafóður |
|