 |
|
|

Vefsíðu dýralæknastofunnar er ætlað að veita dýraeigendum fræðslu og upplýsingar varðandi gæludýr og heilsufar þeirra. Dýralæknir, Dagfinnur, dýralæknar, dýralækningar, dýralæknastofa, dýralækningastofa, dyralaeknir, dyralaeknar, dýraspítali, gæludýr, gæludýrafóur, gæludýravörur, hundasjampó, hundasjampo, gæludýrasjampó, kattafóður |
|
|
Hvað er algengast að kettir borða mikið. Er rétt að gefa þeim einungis þurrfæði og vatn? Afhverju? Ástæðan fyrir því að gefa einkum þurrmat er sú að þurrmaturinn slípar tennurnar og köttum er ekki eins hætt við tannsteini eins og ef þeir eru á blautmat. Þeir þola mjólkurvörur mjög misvel og því er nú vatnið skynsamlegasti kosturinn.
Ég á litla læðu sem alltaf er til í að fá sér að éta. Að öllu jöfnu gef ég henni venjulegan kattamat (þurran) en þegar ég er í góðu skapi gauka ég að henni kæfubitum, rækjum, lifrarpylsu og rúsínum en þessu sporðrennir hún með bestu lyst. Ég geri þetta vitaskuld í litlu magni og ekki mjög oft og því spyr ég, er nokkuð að þessu? Þetta er allt í lagi á meðan ekki er í of miklu magni í einu og læðan fitnar ekki of.
Dagfinnur dýralæknir. Ég var að fá mér persneska kettlinga og var ráðlagt að gefa þeim bara þurrfóður. Ég keypti mjög gott fóður í gæludýraverslun sem þeir eru hrifnir af en má ekki gefa þeim smá dósamat, kannski 1-2 í viku... svona til tilbreytingar fyrir þá??? Það er í stakasta lagi að gefa kettlingnum dósamat svona öðru hvoru meðan aðaluppistaðan er þurrmatur. Vertu bara alveg viss á því að þurrmaturinn sem þú ert að kaupa sé ætlaður kettlingum. Spurningin er svo náttúrulega hvernig kettlingaaldurinn er skilgreindur,- miðaðu við 8-11 mánaða!
Við kærastinn vorum að fá okkur kettling.Bæði höfum við átt ketti áður.Með þennan rekumst við hins vegar á það vandamál að óhugnalega slæm lykt er af kúknum.Húsið verður hreinlega undirlagt af þessari fýlu.Svona var þetta ekki í byrjun.Við notum annað þurrfóður núna en áður (bleytt) sem hún snertir reyndar varla á og eins annan dósamat.Hún er vitlaus í hann svo við höfum minnkað matargjöfina niður í 2svar á dag svo hún borði hitt fóðrið líka.Getur verið að það sé ákveðin tegund af fóðri sem er svona lyktarvaldandi? Gæti það skipt máli að prófa aðra tegund? Fóðrið getur haft mikið að segja, best að nota gott fóður sem fæst hjá dýralæknum og í gæludýraverslunum, þó getur þurft að finna rétta fóðrið fyrir þennan kött. Líka getur verið um magavandamál að ræða og er best að láta dýralækni líta á kisu.
Ég á 5 mánaða kettling hvað er best að gefa henni að borða á maður eingöngu að gefa henni þurrmat, fisk, eða þetta Wiskas á maður að halda sig við eina fæðutegund eða hvað ég er búin að prófa ýmislegt og helst vill hún hátt kjöt og hráann fisk er það óhætt?? ef þú gefur henni matarafganga, kjöt eða fisk þá skaltu hafa það soðið og helst gefa hrisgrjón og grænmeti með aðeins. Þurrmat ætturðu að nota svokallaðan gæðamat, sem þú færð hjá dýralæknum eða gæludýrabúðum, mat sem hentar þessarri kisu, þarf oft að þreifa sig aðeins áfram með það.
|
Dýralæknir, Dagfinnur, dýralæknar, dýralækningar, dýralæknastofa, dýralækningastofa, dyralaeknir, dyralaeknar, dýraspítali, gæludýr, gæludýrafóur, gæludýravörur, hundasjampó, hundasjampo, gæludýrasjampó, kattafóður |
|
|
|
Örmerking katta. Smelltu hér til að skrá. Kisur sem vantar heimili Týnd dýr

Hundaskóli Dýralæknir, Dagfinnur, dýralæknar, dýralækningar, dýralæknastofa, dýralækningastofa, dyralaeknir, dyralaeknar, dýraspítali, gæludýr, gæludýrafóur, gæludýravörur, hundasjampó, hundasjampo, gæludýrasjampó, kattafóður |
|