 |
|
|

Vefsíðu dýralæknastofunnar er ætlað að veita dýraeigendum fræðslu og upplýsingar varðandi gæludýr og heilsufar þeirra. Dýralæknir, Dagfinnur, dýralæknar, dýralækningar, dýralæknastofa, dýralækningastofa, dyralaeknir, dyralaeknar, dýraspítali, gæludýr, gæludýrafóur, gæludýravörur, hundasjampó, hundasjampo, gæludýrasjampó, kattafóður |
|
|
Mig langar svo að vita hvort það sé í lagi að baða persa 1 sinni í mánuði. Einnig hvort maður eigi að gefa þeim bara þurrfóður? (frekar einhæft) Auk þess svo ég svali minni spurningaþörf hvað ég eigi að gera vegna þess hve mikið vessar úr augunum á öðrum kisanum mínum (persneskur). Ég er alltaf að plokka drullu frá augunum en auk þess harðnar þessi vökvi undir augnlokunum - hvað á ég eiginlega að gera???? Ég er búin að prufa sérstaka dropa....... Það er allt í lagi að baða persa 1 sinni í mánuði. Aðalatriðið er að þurrka hann vel á eftir og jafnvel blása á honum feldinn og kemba vel og vandlega svo það komi ekki flókar. Mikilvægt er að nota vörur sem eru sérstaklega ætlaðar fyrir ketti. Það er mjög gott að venja ketti á að borða vandað þurrfóður, það er bæði praktískt heima við, það slípar tennurnar og minnkar hættu á tannsteini fyrir utan að það er sérstaklega hannað fyrir dýr. Það er samt sem áður í lagi að gefa dósamat eða kjúkling öðru hvoru, svona til hátíðarbrigða. Þú er ekki ein á báti með að eiga í erfiðleikum með augun á persum. Þau eru mjög viðkvæm og hjá mörgum köttum getur þetta verið lífstíðarvandamál. Ef þetta er óvenjuslæmt um þessar mundir skaltu fara með köttinn til dýralæknis sem getur athugað hvort um sýkingu er að ræða!
Góðan dag! Mig langaði að vita hvort það sé eitthvað hægt að gera í augnleka í persneskum ketti. Það vill oft leka úr augum persa. Hægt er að fá augnhreinsi hjá dýralæknum til að skola augum sem getur hjálpað. Ef um sýkingu er að ræða þarf oft fúkkalyf til að laga það.
Ég var að spá hvort þú gætir hjálpað mér með kisurnar mínar. Málið er að ég er með 2 persa rúmlega 3ja.mánaða og 5 mánaða og það lekur svo úr augunum á þessum yngri svo mikil drulla og ógeð. Ég er búin að prufa að setja dropa en þetta er samt frekar mikið. Er í lagi að kroppa þetta bara af með puttunum eða hvað á ég að gera???? Það vill oft leka úr augum persakatta, gott er að hreinsa augum með augnhreinsi, sem þú færð hjá dýralækni. Ef sýking er í auga þarf oft fúkkalyfsgjöf.
Ég er með 1/2 persa kött, högna sem er rúmlega eins árs gamall. Mér finnst hann drekka svo lítið, miðað við aðra ketti sem ég hef átt í gegnum tíðina.. Hann lítur ekki við matardallinum ef eingöngu er sett mjólk eða vatn í hann. Hann fer að vísu svolítið út og hlýtur að ná sér í eitthvað þar. Hins vegar hefur hann góða matarlyst og borðar hvað sem er.Er þessi tegund eitthvað öðruvísi en hinn venjulegi köttur.. Mér finnst hann líka sofa mikið meira og mikið fastar en aðrir kettir sem ég hef átt. En hann er kátur og blíður þegar hann er vakandi. Síðan er líka vandamál með feldinn á honum, hann flækist allur ef maður burstar hann ekki upp á hvern dag..sérstaklega undir framfótum og við eyrun.. er eitthvað ráð til að minnka flókann.. Þetta hljómar sem ósköp góður persi, hann líklega drekkur úti eða ef þú gefur blautt fóður þarf hann minna vatn. Það þarf að greiða eða bursta persaketti oft og gott að baða þá annað slagið með kattasjampó og setja svo hárnæringu á eftir til að þeir fari síður í flóka.
Ég er með 8 mánaða gamlan persahögna og ég var að velta því fyrir mér hvort´ætti að klippa hann og/eða hvort þú gætir bent mér á einhverjar upplýsingar um klippingu og umhirðu feldsins? Sumir tala um að þeir plokki hárin við nasirnar á þeim eða einhvernveginn í kringum nefið!? Annað er það sem mig langar til að fá svar við; það er hvort persar megi fara út eins og aðrir kettir? Persar mega fara út.. Til að persar fari ekki í flóka er gott að baða þá annað slagið nota kattasjampó og kattahárnæringu, geiða þeim vel með næringunni og skola svo vel úr. Greiða þeim daglega eða bursta. Ef feldurinn fer í flóka getur þurft að klippa þá og þarf þá að raka þá alveg, sem er best gert hjá dýralækni, þar sem oft þarf að róa þá á meðan.
|
Dýralæknir, Dagfinnur, dýralæknar, dýralækningar, dýralæknastofa, dýralækningastofa, dyralaeknir, dyralaeknar, dýraspítali, gæludýr, gæludýrafóur, gæludýravörur, hundasjampó, hundasjampo, gæludýrasjampó, kattafóður |
|
|
|
Örmerking katta. Smelltu hér til að skrá. Kisur sem vantar heimili Týnd dýr

Hundaskóli Dýralæknir, Dagfinnur, dýralæknar, dýralækningar, dýralæknastofa, dýralækningastofa, dyralaeknir, dyralaeknar, dýraspítali, gæludýr, gæludýrafóur, gæludýravörur, hundasjampó, hundasjampo, gæludýrasjampó, kattafóður |
|