Ég á 4 1/2 árs labrador tík, sem geltir oft á fólk sem henni bregður við, þetta gerist líka oft þegar þetta er kannski þroskaheft og fólk sem er skrítið eða drungalegt í útliti, sem einmitt mega ekki við svona "hrekkjum", mér finnst þetta voða leiðinlegt, hvernig er hægt að venja hana af þessum ósið? Talaðu við hundaþjálfara, farðu kannski með hana á námskeið hjá Hundaræktunafélaðinu..
Okkur langar mikið til þess að eignast hund, við erum þrjú í heimili, en erum frá allan daginn frá ca. 08.30 til 17.30 gengur það??? Verður hundurinn brjálaður af einverunni eða fer þetta eftir tegundum??? Er það staðreynd að minni hundar gelti meira?? ´T.d Pomeranien? Þetta er allt of langur tími fyrir hund að vera einn heima ef það er alla daga og enginn kemur heim yfir þennan tíma.Það yrðu flestir hundar brjálaðir. Gelt getur verið mjög einstakligsbunðið hjá öllum tegundum, fer eftir uppeldi og oft hve hundurinn er skilinn mikið eftir einn.
Ég hef eina spurningu varðandi hundinn minn sem er af tegundinni American Cocker Spaniel og er 9 mánaða gamall. Hann hefur gert mjög mikið af því að hlaupa í hringi og narta í lærið á sér. Hann getur hlaupið alveg upp undir 30 hringi og þegar hann gefst upp þá byrjar hann að gelta og gelta á lærið á sér, hundur sem geltir aldrei nema þegar verið er að ryksuga. Ég veit ekki hvað þetta er en systir mín (sem á reyndar hundinn) heldur því fram að hann sé bara með sinadrátt. En hún virðist nú ekki vita mikið um það. Það liggur við að maður vorkenni hundinum smávegis þar sem hann virðist ekki vera alltof sáttur við þetta. Hvað heldur þú að þetta geti verið??? Láttu dýralækni líta á hann til að athuga hvort eitthvað sé að í lærinu. Kláði, sár eða þvíumlíkt.
3ja ára tíkin mín er allt í einu byrjuð að gera þarfir sínar annarsstaðar en úti, en ekki á mínu heimili. Var ímyndunarólétt fyrir um viku síðan. Hvaða mótmæli eru þetta??? Getur þetta verið vegna þess að ég er byrjuð að eyða meiri tíma með henni en áður??? Sjálfsagt er þetta einhver taugaveiklun eftir ímyndunaróléttuna. Best er að tala við hundaþjálfara um þetta vandamál. Gott gæti verið að láta líka dýralækni líta á hana hvort eitthvað sé að t.d. legbólga.
Ef ég hefði hug á að fá mér hund er í lagi að skilja dýrið eftir allan daginn ég/við erum frá yfir daginn frá kl 8.30 til 17.30. Fer þetta t.d eftir hundategundum? Er einhver ein tegund annari betri m. tilliti til hárloss, gelts, eða geðbrygða??? (er með barn á heimilinu, ekki ungabarn samt) Ekki er hægt að mæla með því að fá sér hund sem á að skilja eftir heima allan daginn, þetta er allt of langur tími, ef enginn er heima né kemur heim allan tímann. Það eru tegundir hunda sem hafa ekki hárlos. Tegundir eru líka mismunandi að geði, en allar tegundir yrðu líklega geðvondar og erfiðar ef á að hafa hundinn einan allan daginn. Sjá um val á hvolpi
Ég á 4 ára blendings tík sem tók uppá því fyrir c.a ári síðan að vera frekar grimm við aðra hunda, þá sérstaklega aðrar tíkur. Hún urrar og æltar að ráðast á þær, en svo getur hún verið mjög góð við suma hunda. Maður þarf alltaf að ríghalda í ólina þegar maður mætir öðrum hundum í gönguferð, því maður veit aldrei hvað hún hyggst gera. Er eitthvað hægt að gera við þessu, eða er hún bara að sýna hver ræður?? Það væri best að fara með hana til hundaþjálfara á hlýðnisnámskeið.
Mig langar að spyrja þig varðandi ættbókarfærðan Boxer sem ég á. Þetta er rakki, 15 mánaða gamall. Þannig er að hann er ferleg mannafæla og gengur svo langt að hann jafnvel mígur niður úr hræðslu, þó viðkomandi sé ekki einu sinni að reyna að nálgast hann, augnsamband er nóg. Hann skelfur líka mikið þegar hann hittir fólk og hleypur í felur í íbúðinni og skiptir engu hvort hann sé að hitta fólkið í fyrsta skipti eða oftar. Heimilisfólki sýnir hann hina "alræmdu" boxer-gleði, en þó hef ég fengið að heyra að hann hafi einstakt skap, mjög rólegur af Boxer að vera, þó augljóslega enginn "varðhundur" í honum. Hvað er til ráða? NB við erum ekki að fást við uppeldi hunda í fyrsta skipti, en höfum í engu farið öðruvísi að með Boxerinn. Líklega er best að tala við hundaþjálfara og fara með hann í hvolpanámskeið. Ef þetta reynist vera geðrænt vandamál t.d. vegna áfalls í æsku er hægt að koma með hann til dýralæknis og athuga með að setja hann á geðlyf.
Hvað get ég gert í sambandi við ameriskan cocker spaniel hund sem ég á. Hann er 2 ára og mjög blíður og góður en á það til að bíta og urra, sérstaklega þegar honum mislíkar eitthvað, t.d ef hann liggur einhvers staðar og það er stuggað við honum ég er búinn að reyna ýmislegt eins og að refsa honum og skamma en alltaf er geðið jafn stirt. Nú er ég að spá í að lóga honum en það er ekki það sem mig langar. Þetta er alvarlegt mál ef að hundurinn þinn urrar og bítur. Ég vona að enginn hafi slasast fram að þessu. Í þínum sporum mundi ég reyna að tala við hundaþjálfara og jafnvel hundasálfræðing og reyna í samvinnu við hann að vinna bug á á þessu vandamáli. Stundum getur verið nauðsynlegt samhliða þjálfun að tala við dýralækni og setja dýrið jafnframt á lyfjakúr.
Ég og fjölskylda mín eigum litla 3 ára poddle tík. Hún ælir stundum á gólfið einhverri gulri froðu og smá slími, með frekar löngu millibili, og þess á milli er allt í lagi með hana. Þetta gerðist oftar þegar hún var hvolpur. er þetta eðlilegt, gæti mataræðið verið ástæðan. Hún borðar engann Hundamat, við höfum prófað margar tegundir. Hún vill bara matinn sem við erum að borða. Við höfum reynt að að gefa henni ekki mat frá okkur en hún sveltir sig bara þar til við gefumst upp. Hún er með kattasandkassa til að gera þarfir sínar í og er algjörlega sátt við það en einstöku sinnum tekur hún upp á því að skíta á teppið inni í stofu eða í ganginum. Svo er hún skíthrædd við allt fólk og öll dýr hún hleypur þá bara í fangið á manni. Hún geltir mjög mikið sérstaklega á bréfberann og litlu krakkana sem bera út DV og þó hún sé hrædd við fólk eltir þau langar leiðir geltandi og urrandi ef hún er úti. Getur þú hjálpað okkur eitthvað í sambandi eitthvað af þessu. Við búum út á landi og getum því ekki farið með hana á hundanámskeið. Takk fyrir. Ælið getur stafað af einhverjum mat sem hún þolir ekki. Reyndu að fyljast með hvort þetta skeður eftir að hún fær t.d. mjólk. Það virðist vera að uppeldið sé ekki alveg nógu gott, svo besta ráð er að komast á hlýðnisnámskeið með hana, eða talaðu við hundaþjálfara.
Ég er með eina tík 10 mánaða , blanda af collie, sheffer og terrier, hún er rosalega blíð, fljót að læra, hlýðin en það er eitt sem hún gerir sem ég get ekki fengið hana til að hætta að gera, það er sama hvað ég geri, hún má ekki heyra í krökkum, bílhurð skellta, umgang úti, einhvern koma að útidyrahurðinni, þá geltir hún stöðugt ef hún heyrir minnsta hlóð, það er svo komið að ég vil helst fara með hana í lógun eingöngu út af þessu því ég veit ekki hvernig ég á að fá hana til að hætta þessu, ég á eina litla dóttir sem tíkin er að vekja í tíma og ótíma á nóttunnu með þessu gellti sínu,hvað get ég gert til að fá hana til að hætta þessu gellti? Ég veit að hundar þurfa að gellta en þetta er of mikið af því góða, þetta er hundur # 3 sem ég á núna á síðustu 20 árum og þykist ég þekkja þá og hinir tveir gelltu ekki svona mikið. Með fyrirfram þökk.
Það getur verið mjög erfitt að venja hunda af svona gelti, þar sem þeir eru að verja húsið.. Þú ættir að fara með hana á hlýðnisnámskeið, ef þu ert ekki búin að því nú þegar.. Svo er hægt að ræða við hundaþjálfara hjá hundaskólunum. Síðasta úrræði getur verið að fá sérstaka ól á hana, til að venja af þessu.. Mögulegt væri að prófa geðlyf, þá þaftu að fara með hana til dýralæknis..
Sæl, Ég á 3 ára tík sem skyndilega hefur tekið ástfóstri við eitt leikfangið sitt, hugsar um það eins og það sé hvolpur. Þetta er plastdagblað, sem hann allt í einu vill alltaf hafa hjá sér, sefur með það og tekur það MJÖG varlega upp eins og hann sé að passa að meiða það ekki! er einhver sérstök ástæða fyrir því að hann gerir þetta?? Kveðja Jónína Gæti hún verið hvolpafull? Er nýbúið að taka hvolpa frá henni? Mögulega gæti verið um gervi óléttu að ræða..
|
Dýralæknir, Dagfinnur, dýralæknar, dýralækningar, dýralæknastofa, dýralækningastofa, dyralaeknir, dyralaeknar, dýraspítali, gæludýr, gæludýrafóur, gæludýravörur, hundasjampó, hundasjampo, gæludýrasjampó, kattafóður |