| Niðjatal 4-6 ættliður | Vefarasíðan | Jón og Þórey |
![]() |
Jóns Bergsson og Margrét Pétursdóttir |
Jón Bergsson var fæddur í Bjarnanesi 21. maí 1855. Hann ólst upp með foreldrum sínum, fyrst í Bjarnanesi, síðar á Ási í Fellum og Vallanesi. Hann var að miklu leyti sjálfmenntaður maður. Stundaði þó nám í verslunarskóla í Kaupmannahöfn árið 1884. Stýrði hann Pöntunarfélagi Fljótsdalshéraðs 1886 til 1893. Hann kvæntist Margréti Pétursdóttur frá Vestdal í Seyðisfirði árið 1887. Hún var fædd 28. mars 1865. Bjuggu þau á Seyðisfirði þar til þau kaupa Egilsstaði á Völlum og flytja þangað 1889.
Hýsti og bætti hann jörðina mikið, þannig að hann hafði 700 fjár á fóðrum er flest var, auk mjólkurpenings og hesta er voru fjölmargir. Árið 1903 byggir hann íbúðarhús úr steinsteypu 14x24 álnir, tvílyft með kjallara undir. Var þetta fyrsta húsið er þannig var byggt á Héraði. Árið 1904 kaupir Jón Kollstaði og 1914 byggir hann viðbyggingu við eldra húsið úr steinsteypu, álíka stórt og það eldra og rak þar gistihús, og er það starfrækt enn í dag.
Páll Eggert Ólafsson ætt og sagnfræðingur, segir svo í íslensku æviskránni, endursagt: “Egilsstaðir voru miðstöð alls héraðsins og tók hann við afgreiðslu pósts og síma. Verslun rak hann um hríð og var svo forgöngumaður að stofnun Kaupfélags Héraðsbúa 1909 og útvegaði því vörur í sínu nafni. Vegna sjóndepru varð hann að láta af forstöðu KHB. Var hann í öllu bjartsýnn framfara og drengskaparmaður, enda lánsmaður.Gegndi hann ýmsum trúnaðarstörfum fyrir DBRM og var riddari af fálkaorðunni.”
Sjóndepran sem þjáði Jón á sextugsaldrinum ágerðist ár frá ári en þrátt fyrir það hafði hann yfirstjórn framkvæmda á búinu, en varð að láta af störfum á opinberum vettvangi.
Jón Bergsson lést 9 júlí 1924.
Margrét var honum samhent og ómetanleg stoð. Hún var hin mesta myndar og fróðleikskona, stjórnsöm og hyggin í rekstri þessa mannmarga og gestkvæma heimilis þeirra. Margrét vann mikið að kvenfélagsmálum, var í skólaráði Húsmæðraskólans á Hallormsstað og í stjórn Sambands austfirskra kvenna frá upphafi.
Margrét Pétursdóttir lést 16. Júlí 1944.
Börn þeirra Egilsstaðahjóna Margrétar og Jóns voru 9, Sigríður, Þorsteinn, Sigríður, Sveinn, Egill, Ólöf, Bergur, Pétur og Unnur. Öll voru þau fædd á Egilsstöðum, nema Sigríður sem var elst og fædd á Þórarinsstaðaeyrum við Seyðisfjörð.
Framætt Margrétar Pétursdóttir
![]() |
Niðjatal hjónanna Jóns Bergssonar og Margrétar Pétursdóttur Egilsstöðum á Völlum |
Jón Bergsson, f. 21. maí 1855 í Bjarnanesi, d. 9. júlí 1924 á Egilsstöðum á Völlum, bóndi á Egilsstöðum 1889 til æviloka, kaupmaður, póstafgreiðslumaður m.m.
For.: Bergur Jónsson, f. 4. júlí 1825 á Hofi í Álftafirði, d. 7. maí 1891 í Vallanesi, prestur í Vallanesi og k.h. Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 5. nóv. 1820 í Bakkahjálegu í Austur-Landeyjum, d. 16. mars 1887 í Vallanesi.
- K. 13. ágúst 1887, Margrét Pétursdóttir, f. 28. mars 1865 á Brimnesi í Seyðisfirði, d. 16. júlí 1944 í Reykjavík, húsmóðir á Egilsstöðum.
For.: Pétur Sveinsson, f. 19. mars 1833, d. 20. maí 1880, bóndi í Vestdal í Seyðisfirði og Ólöf Bjarnadóttir, f. 30. okt. 1834 í Hellisfirði, d. 14. okt. 1937 á Egilsstöðum.
Börn þeirra:
a) Sigríður Jónsdóttir, f. 24. maí 1888,
b) Þorsteinn Jónsson, f. 20. júlí 1889,
c) Sigríður Jónsdóttir, f. 26. maí 1891,
d) Sveinn Jónsson, f. 8. jan. 1893,
e) Egill Jónsson, f. 17. júlí 1894,
f) Ólöf Jónsdóttir, f. 23. júní 1896,
g) Bergur Jónsson, f. 6. apríl 1899,
h) Pétur Jónsson, f. 23. okt. 1904,
i) Unnur Jónsdóttir, f. 17. ágúst 1907.
Sigríður
a Sigríður Jónsdóttir, f. 24. maí 1888 á Þórarinsstaðaeyrum við Seyðisfjörð, d. 9. sept. 1888 á Seyðisfirði.

Þorsteinn
b Þorsteinn Jónsson, f. 20. júlí 1889 á Egilsstöðum, d. 13. okt. 1976 í Reykjavík, kaupfélagsstjóri í Hermes á Búðareyri við Reyðarfjörð 1917-61.
~ Sigríður Kjerúlf Þorvarðardóttir, f. 25. maí 1891 á Ormarsstöðum í Fellum, d. 13. júní 1973 í Reykjavík, húsfreyja á Reyðarfirði.
For.: Þorvarður Kjerúlf Andrésson, f. 1. apríl 1848 á Melum í Fljótsdal, d. 26. júlí 1893, læknir og alþingismaður og Guðríður Ólafsdóttir Hjaltested, f. 12. ágúst 1864, d. 17. okt. 1942, húsfreyja Ormarsstöðum, Reykjavík og Vallanes á Völlum.
Börn þeirra:
a) Þorvarður Kjerúlf Þorsteinsson, f. 24. nóv. 1917,
b) Margrét Þorsteinsdóttir, f. 12. febr. 1922,
c) Jón Þorsteinsson, f. 31. júlí 1924,
d) Þorgeir Þorsteinsson, f. 28. ágúst 1929.
Fóstursonur þeirra:
e) Ólafur Helgi Bjarnasson, f. 21. febr. 1915.

Sigríður
c Sigríður Jónsdóttir, f. 26. maí 1891 á Egilsstöðum, d. 9. júní 1971, póst- og símstöðvarstjóri.

Sveinn
d Sveinn Jónsson, f. 8. jan. 1893 á Egilsstöðum, d. 26. júlí 1981 á Egilsstöðum, bóndi og gestgjafi á Egilsstöðum.
- K. 12. júní 1921, Sigríður Fanney Jónsdóttir, f. 8. febr. 1894 Strönd Völlum, d. 14. sept. 1998 á Egilsstöðum, húsfreyja á Egilsstöðum.
For.: Jón Einarsson, f. 22. júlí 1865, d. 2. nóv. 1951, bóndi á Strönd og Ingunn Pétursdóttir, f. 1. okt. 1868 Skildinganesi, d. 26. júlí 1921, húsfreyja á Strönd.
Börn þeirra:
a) Ásdís Sveinsdóttir, f. 15. apríl 1922,
b) Jón Egill Sveinsson, f. 27. ágúst 1923,
c) Ingimar Sveinsson, f. 27. febr. 1928.
>
Egill
e Egill Jónsson, f. 17. júlí 1894 á Egilsstöðum, d. 9. des. 1983 í Reykjavík, læknir á Seyðisfirði.

Ólöf
f Ólöf Jónsdóttir, f. 23. júní 1896 á Egilsstöðum, d. 22. nóv. 1985 á Egilsstöðum, verslunarstjóri á Egilsstöðum.

Bergur
g Bergur Jónsson, f. 6. apríl 1899 á Egilsstöðum, d. 18. jan. 1970, bóndi Ketilsstöðum, Völlum.
- K. 7. júlí 1928, Sigríður Hallgrímsdóttir, f. 13. sept. 1907 frá Ketilsstöðum, Völlum, d. 20. jan. 1967, húsfreyja Ketilsstöðum, Völlum.
For.: Hallgrímur Þórarinsson, f. 20. júlí 1873 á Ketilsstöðum, Völlum, d. 2. okt. 1947, Bóndi og k.h. Þórdís Guttormsdóttir, f. 18. mars 1864 í Beinárgerði, Völlum, d. 28. okt. 1927, húsfreyja.
Börn þeirra:
a) Þórdís Bergsdóttir, f. 7. júlí 1929,
b) Jón Bergsson, f. 25. júní 1933,
c) Hallgrímur Bergsson, f. 1. mars 1940.

Pétur
h Pétur Jónsson, f. 23. okt. 1904 á Egilsstöðum, d. 1. ágúst 1991, bóndi á Egilsstöðum.
~ Elín Ólafsdóttir Stephensen, f. 19. okt. 1904 í Skildinganesi á Seltjarnarnesi, d. 25. mars 1994, húsfreyja á Egilsstöðum.
For.: Ólafur Magnússon Stephensen, f. 24. júlí 1863, d. 10. mars 1934, prófastur síðast í Bjarnanesi og Steinunn Eiríksdóttir Stephensen, f. 1. febr. 1870, d. 25. mars 1957, húsfreyja.
Börn þeirra:
a) Jón Pétursson, f. 23. júní 1930,
b) Ólafur Stephensen Pétursson, f. 11. nóv. 1932 á Egilsstöðum, d. 26. des. 1955.
c) Margrét Pétursdóttir, f. 14. ágúst 1937,
d) Áslaug Pétursdóttir, f. 8. mars 1944.