Margrét Jónsdóttir

1d Margrét Jónsdóttir, f. 17. ágúst 1801 á Arnheiðarstöðum í Fljótsdal, d. 14. febr. 1865 í Vestdal, húsfreyja í Vestdal í Seyðisfirði. - Maki: 21. sept. 1824, Sveinn Sveinsson, f. 23. des. 1798 á Hofi í Mjóafirði, d. 3. febr. 1867 í Vestdal, bóndi, hreppstjóri og alþingismaður. For.: Sveinn Sveinsson, bóndi og hreppstjóri á Hofi í Mjóafirði og síðar í Vestdal í Seyðisfirði, f. um 1757, d. 2. sept. 1838 (80 ára), og k.h. Sesselja Árnadóttir (frá Grænanesi í Norðfirði), húsfreyja, f. 1763, d. 2. sept. 1834. Börn þeirra: a) Jóhanna, f. 26. des. 1825, b) Sveinn, f. 9. mars 1829, c) Sesselja (Setselia), f. 17. júlí 1831, d) Pétur, f. 19. mars 1833, e) Anna, f. 21. sept. 1834.

Jóhanna Sveinsdóttir

2a Jóhanna Sveinsdóttir, f. 26. des. 1825 í Vestdal í Seyðisfirði, húsfreyja í Vestdal og (1866-1874) á Brimnesi í Seyðisfirði, síðar húskona á Vestdalseyri og Þórarinsstaðaeyrum og (frá 1889) vinnukona á Egilsstöðum á Völlum. - Maki I: 8. okt. 1849, Sveinn Snjólfsson, f. 22. nóv. 1822 í Firði, d. 2. mars 1856 í Vestdal, bóndi. For.: Snjólfur Einarsson (frá Firði), bóndi og meðhjálpari á Hánefsstöðum í Seyðisfirði, f. um 1794 á Nesi í Loðmundarfirði., d. 25. des. 1862, og k.h. Guðrún Sveinsdóttir, húsfreyja, f. 1791, d. 22. júlí 1866. (Guðrún var alsystir Sveins, föður Jóhönnu. Sveinn og Jóhanna voru því systkinabörn). Barnlaus. - Maki II: 1866?, Flóvent Halldórsson, f. 4. apríl 1840 á Kjarna, bóndi á Brimnesi og húsmaður á Vestdalseyri, síðar (frá 1876) í Kanada? Þau skildu 1875. For.: Halldór Jónsson, bóndi á Kjarna í Hrafnagilshr., Eyjaf., f. 7. apríl 1796, d. 11. maí 1848, og k.h. Margrét Flóventsdóttir, húsfreyja, f. 1804, d.(Margrét ekki meðal látinna í Möðruvallaklausturssókn fyrir 1855. ?) Barnlaus, en fóstursonur þeirra: Flóvent H Jónsson. Jóhanna fluttist 1889 að Egilsstöðum á Völlum, er vinnukona þar við manntal 1890, en finnst hvorki meðal látinna né brottvikinna úr sókninni 1890-1930. Hvað varð af henni? Var hún e.t.v. í Fríkirkjusöfnuði Vallahrepps?) Flóvent Halldórsson virðist hafa flust á Vestdalseyri 1862, er vinnumaður þar við húsvitjun í apríl 1863 hjá Gustav Iwersen faktor, í heimili hjá Nikulási Jónssyni og Önnu Sveindóttur á Vestdalseyri árið eftir, en í des. 1865 hjá Sveini Sveinssyni í Vestdal, þá trúlega trúlofaður (eða kvæntur?) Jóhönnu. Þau ekki tilgreind í sókninni árið eftir, en í apríl 1867 eru þau í húsmennsku á Brimnesi hjá Pétri Sveinssyni. Í apríl 1868 er Flóvent skráður bóndi þar, en Pétur fluttur í Vestdal. Í árslok 1868 er kominn í heimilið tökubarnið Flóvent H. Jónsson, 2ja ára, og ólst hann upp hjá Flóvent og Jóhönnu. Árið 1870 er skráður í heimilið Óli Gunnar Flóventsson (f. 1869), sonur Flóvents, en ókunnugt er um móður. Hann lést á Brimnesi 9. maí 1872. Í árslok 1874 eru Flóvent og Jóhanna skráð í húsmennsku í Vestdal, en á sama tíma árið eftir er Jóhanna húskona á Hánefsstöðum með tökudrenginn Flóvent, en Flóvent eldri (þau skilin) húsmaður á Vestdalseyri og býr þar með Oddnýju Sigfúsdóttur (24 ára), skráð vinnukona. Hjá þeim er sonur þeirra eins árs, Flóvent Jóhann Snorri Flóventsson. Þau þrjú fluttust síðan til Kanada frá Vestdalseyri til Kanada sumarið 1876. – Jóhanna var í árslok 1876 húskona í Finnbogabúð á Vestdalseyri og ein í heimili á Vestdalseyri með Flóvent yngra við árslok 1877. Við manntal 1. okt. 1880 er hún skráð “ekkja” og húskona í Veitingahúsinu á Vestdalseyri hjá Finnbogasyni, en Flóvent hvorki skráður þar né annars staðar í sókninni. Er síðan komin austur á Þórarinsstaðaeyrar til Ólafar mágkonu sinnar 1889, þegar hún flytur með henni upp í Egilsstaði á Völlum, skráð vinnukona þar í heimili 1890.

 

Sveinn Sveinsson

2b Sveinn Sveinsson, f. 9. mars 1829 í Vestdal í Seyðisfirði, d. 18. júlí 1833 í Vestdal.

Sesselja Sveinsdóttir

2c Sesselja Sveinsdóttir, f. 17. júlí 1831 í Vestdal í Seyðisfirði, d. 5. mars 1844 í Vestdal.

Pétur Sveinsson

2d Pétur Sveinsson, f. 19. mars 1833 í Vestdal í Seyðisfirði, d. 20. maí 1880 á Þórarinsstaðaeyrum?, bóndi í Vestdal (1854-1858), á Brimnesi (1858-1867) og í Vestdal á ný (1867-187….?), síðar húsmaður á Þórarinsstaðaeyrum við Seyðisfjörð. - Maki I: 15. sept. 1854, Þórunn Hermannsdóttir, f. 22. júlí 1831 á Selsstöðum, d. 8. jan. 1855 í Vestdal, húsfreyja. For.: Hermann Halldórsson, bóndi á Selsstöðum í Seyðisfirði, f. 1804, d. 13. febr. 1857, og k.h. Þórunn Björnsdóttir (frá Selsstöðum), húsfreyja, f. 12. mars 1811, d. 26. mars 1898. Barnlaus. - Maki II: 1860, Ólöf Bjarnadóttir, f. 1. nóv. 1834 í Hellisfirði, d. 14. okt. 1937 á Egilsstöðum, húsfreyja, verka- og tómthúskona, síðar (frá 1889) til heimilis á Egilsstöðum á Völlum. For.: Bjarni Pétursson, sjálfseignarbóndi í Hellisfirði, f. 1797, d. 3. sept. 1842, og k.h. Guðrún Erlendsdóttir (frá Hellisfirði), húsfreyja, f. 1797, d. 8. apríl 1873. Börn þeirra: a) Sveinn, f. 1860, b) Sveinn, f. 1863, c) Margrét Jóhanna,(Fyrst nefnd Jóhanna Margrét í húsvitjunarbók, en síðan Margrét Jóhanna, en fæðingarskrá er glötuð.). f. 28. mars 1865, d) Guðrún Sesselja, f. í okt. 1866, e) Erlenda, f. 1868, f) Anna, f. 12. nóv. 1871.(Í manntali 1901 (Egilsstaðir) segir í athugasemdum við Ólöfu, að hún eigi tvö börn á lífi, en fjögur börn hennar séu látin.) Fóstursonur þeirra: Ólafur Pétursson, f. 1861? (í Skorrastaðasókn?) (Pétur var ekkill á Brimnesi við manntal 1. okt. 1860 og hjá honum Ólöf Bjarnadóttir, ógift bústýra (22 ára). Hún fædd í Skorrastaðasókn 1835. Ólöf og Pétur eru sögð gift (“kona hans”) við húsvitjun í mars 1862. Ólöf skráð ekkja í þurrabúð á Þórarinsstaðaeyrum 1. okt. 1880 ásamt dóttur sinni, Önnu Pétursdóttur (8 ára). Lifir á fiskveiðum.

Sveinn Pétursson

3a Sveinn Pétursson, f. 1860 á Brimnesi í Seyðisfirði, d. 1. ágúst 1861 á Brimnesi.

Sveinn Pétursson

3b Sveinn Pétursson, f. 1863 á Brimnesi í Seyðisfirði, d. 6. apríl 1879 í Vestdal í Seyðisfirði (sagður 15 ára).

Margrét Pétursdóttir

3c Margrét Jóhanna Pétursdóttir, f. 28. mars 1865 á Brimnesi í Seyðisfirði, d. 16. júlí 1944 í Reykjavík, húsfreyja á Þórarinsstaðaeyrum og Búðareyri við Seyðisfjörð, síðar (frá 1889) á Egilsstöðum á Völlum. - Maki: 13. ágúst 1887,(Giftust í Vallanesi og þá um leið bróðir Jóns, Brynjólfur og Þorbjörg Sigfúsdóttir. ) Jón Bergsson, f. 21. maí 1855 í Bjarnanesi, d. 9. júlí 1924 á Egilsstöðum, bóndi, kaupmaður, póst- og símstöðvarstjóri og kaupfélagsstjóri. For.: Bergur Jónsson, prestur í Bjarnanesi í Nesjum, á Ási í Fellum og í Vallanesi, f. 4. júlí 1825, d. 7. maí 1891, og fyrri k.h. Sigríður Þorsteinsdóttir, húsfreyja, f. 5. nóv. 1820, d. 16. mars 1887. Börn þeirra: a) Sigríður, f. 24. maí 1888, b) Þorsteinn, f. 20. júlí 1889, c) Sigríður, f. 26. maí 1891, d) Sveinn, f. 8. jan. 1893, e) Egill, f. 17. júlí 1894, f) Ólöf, f. 23. júní 1897, g) Bergur, f. 6. apríl 1899, h) Pétur, f. 23. okt. 1904, i) Unnur, f. 17. ágúst 1907.

Guðrún Sesselja Pétursdóttir

3d Guðrún Sesselja Pétursdóttir, f. í okt. 1866 á Brimnesi í Seyðisfirði, d. 6. nóv. 1866 á Brimnesi (7 vikna).

Erlenda Pétursdóttir

3e Erlenda Pétursdóttir,(Nafnið ritað Erlinda í endurgerða skrá yfir dána í Dvergasteinssókn 1854-1885.) f. 1868 í Vestdal í Seyðisfirði, d. 12. ágúst 1869 í Vestdal.

Anna Pétursdóttir

3f Anna Pétursdóttir, f. 12. nóv. 1871 í Vestdal í Seyðisfirði, d. 25. febr. 1936 á Hálsi í Fnjóskadal?, húsfreyja á Bergsstöðum í Svartárdal og á Hálsi í Fnjóskadal. - Maki: 21. júní 1896, Ásmundur Gíslason, f. 21. ágúst 1872 á Þverá, d. 4. febr. 1947 í Reykjavík, sóknarprestur. For.: Gísli Jóhannes Ásmundsson, bóndi og hreppstjóri á Þverá í Dalsmynni, S-Þing., f. 17. júlí 1841, d. 28. jan. 1898, og seinni k.h. Þorbjörg Olgeirsdóttir, húsfreyja, f. 12. júlí 1842, d. 5. febr. 1923. Synir þeirra: a) Ólafur, f. 19. ágúst 1897, b) Gísli, f. 23. sept. 1898, c) Gísli Þorlákur, f. 24. mars 1906, d) Einar, f. 10. apríl 1912.

4a Ólafur Ásmundsson, f. 19. ágúst 1897 á Bergsstöðum í Svartárdal?, d. 17. nóv. 1991 í Reykjavík, bóndi á Hálsi í Fnjóskadal, síðar verkamaður og starfsmaður Hitaveitu Reykjavíkur. - Maki: María Jónsdóttir, f. 24. júlí 1898, d. 16. júní 1958 í Reykjavík?, húsfreyja. Þau skildu For.: Jón og k.h. Jónína Sölvadóttir, húsfreyja, f. 22. apríl 1874, d. 23. júlí 1954.

4b Gísli Ásmundsson, f. 23. sept. 1898 á Bergsstöðum í Svartárdal, d. 14. nóv. 1898 á Bergsstöðum.

4c Gísli Þorlákur Ásmundsson, f. 24. mars 1906 á Hálsi í Fnjóskadal, d. 29. júní 1990 í Reykjavík, þýðandi og kennari við Verslunarskóla Íslands í Reykjavík. Ókvæntur og barnlaus.

4d Einar Ásmundsson, f. 10. apríl 1912 á Hálsi í Fnjóskadal, d. 20. jan. 1963 í Reykjavík, hæstaréttarlögmaður og ritstjóri í Reykjavík. - Maki: 19. júní 1937, Sigurbjörg Einarsdóttir, f. 7. júní 1909 í Reykjavík?, d. 1. febr. 1978 í Reykjavík, húsfreyja. For.: Einar Björnsson, verslunarstjóri í Reykjavík, f. 2. okt. 1874, d. 27. sept. 1958, og k.h. Margrét Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 20. ágúst 1878, d. 12. nóv. 1918. Börn þeirra: a) Ásmundur, f. 16. sept. 1938, b) Anna Margrét, f. 4. des. 1942, c) Hildur, f. 16. júní 1950.

5a Ásmundur Einarsson, f. 16. sept 1938 í Reykjavík, blaðamaður og blaðafulltrúi? í Reykjavík. - Maki I: 7. ágúst 1962, Ragna Magnea Þorsteins, f. 5. des. 1938 í Reykjavík?, húsfreyja og flugfreyja. Þau skildu 1964. For.: Karl Andreas Eiríksson Þorsteins, stórkaupmaður, framkvæmdastjóri og ræðismaður í Reykjavík, f. 18. ágúst 1901, d. 21. jan. 1987, og k.h. Steinunn Jóhanna Sigurhansdóttir Þorsteins, húsfreyja, f. 16. ágúst 1909, d. 20. apríl 2002. Dóttir þeirra: a) Steinunn, f. 31. des. 1962. - Maki II: 19. des. 1970, Jóhanna María Jóhannesdóttir, f. 18. júlí 1943 í Reykjavík, B.A. Econ. (Hons.), skrifstofustjóri heimspekideildar Háskóla Íslands. Þau skildu 20. des. 1972, lögsk. 2. nóv. 1973. For.: Jóhann Ingvar Pétursson, vélstjóri og vélfræðikennari í Reykjavík, f. 4. ágúst 1918, d. 26. sept. 1990, og k.h. Ísafold Kristjánsdóttir, húsfreyja, f. 22. maí 1907, d. 27. júlí 1996. - Maki III: 12. okt. 1979, Anna Þorgrímsdóttir, f. 29. mars 1939 í Keflavík?, ráðgjafi. Þau skildu 1988. For.: Þorgrímur Eyjólfsson, forstjóri og bæjarfulltrúi í Keflavík, f. 2. maí 1905, d. 12. des. 1977, og k.h. Eiríka Guðrún Árnadóttir, húsfreyja, f. 28. okt. 1903, d. 4. sept. 1994.

6a Steinunn Ásmundsdóttir, f. 31. des. 1962 í Reykjavík,

5b Anna Margrét Einarsdóttir, f. 4. des. 1942 í Reykjavík, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík. - Maki: 15. jan. 1966, Sigurður Egill Garðarsson, f. 24. mars 1941 í Reykjavík, M.S., tónlistar- og menntaskólakennari. Þau skildu 19.... For.: Garðar Sigurðsson, prentmeistari, prentsmiðjustjóri í Reykjavík, f. 12. febr. 1917, og k.h. Sigrid Karlsdóttir, húsfreyja, f. 4. febr. 1918. Börn þeirra: a) Garðar, f. 4. júlí 1966, b) Björg, f. 6. júní 1969, c) Einar Bjarni, f. 29. sept. 1973.

6a Garðar Sigurðsson, f. 4. júlí 1966 í Reykjavík

6b Björg Sigurðardóttir, f. 6. júní 1969 í Reykjavík

6c Einar Bjarni Sigurðsson, f. 29. sept. 1973 í Reykjavík

5c Hildur Einarsdóttir, f. 16. júní 1950 í Reykjavík, blaðamaður í Reykjavík. - Maki: Egill Ágústsson, f. 27.  apríl 1950 í Vestmannaeyjum, framkvæmdastjóri. For.: Ágúst Vilhjálmur Matthíasson, í Vestmannaeyjum, f. 30. júlí 1914, d. 21. jan. 1988, og k.h. Synir þeirra: a) Darri, f. 2. júlí 1985, b) Andri, f. 4. nóv. 1988.

6a Darri Egilsson, f. 2. júlí 1985 í Reykjavík.

6b Andri Egilsson, f. 4. nóv. 1988 í Reykjavík.

Anna Sveinsdóttir

2e Anna Sveinsdóttir, f. 21. sept. 1834 í Vestdal í Seyðisfirði, d. 3. nóv. 1871 í Odda, húsfreyja í Vestdal, Nikulásarhúsi á Vestdalseyri og Odda (1865-1871) á Oddeyri? í Seyðisfirði.- Maki: 1856, Nikulás Jónsson, f. 16. júlí 1831 á Hofi í Álftafirði, d. 16. sept. 1920 í Leslie, lærður trésmiður frá Kaupmannahöfn, trésmiður og kaupmaður á Seyðisfirði 1855-1883, síðar (frá 1883) í Mountain og nærri Hallson í Norður-Dakota og í Vatnabyggð í í Saskatchewan í Kanada, síðast í Leslie. (Anna var fyrri k. Nikulásar, sem seinna kvæntist frænku hennar, Þórunni Pétursdóttur frá Valþjófsstað, sjá Pétursniðja bls. ……) For.: Jón Bergsson, prestur á Hofi í Álftafirði, f. 9. nóv. 1798, d. 16. ágúst 1843, og k.h. Rósa Brynjólfsdóttir, húsfreyja, f. 12. okt. 1802, d. 2. júní 1856. Dætur þeirra: a) Kristín, f. 1857, b) Jónína  Margrét, f. 13. sept. 1861 .(Við húsvitjun í jan. 1856 er Nikulás sagður ókv. trésmiður í Vestdal, kvæntur snikkari þar við húsvitjun 1857 og í maí 1858, á Vestdalseyri við húsvitjanir 1859-1864 (í Nikulásarhúsi við manntal 1. okt. 1860). Eru komin í Odda inni í kauptúni í des. 1865. – Nikulás er skráður bóndi á Dvergasteini við manntal 1. okt. 1880. )

Kristín Nikulásdóttir

3a Kristín Nikulásdóttir, f. 1857 í Vestdal á Seyðisfirði, d. 30. júlí 1869 á  Seyðisfirði.

Jónína Margrét Nikulásdóttir Paulson

3b Jónína Margrét Nikulásdóttir Paulson, f. 13. sept. 1861 á Vestdalseyri á Seyðisfirði, d. 2. apríl 1894 í Regina, húsfreyja í Regina í Sasckatchewan í Kanada. - Maki: ....... 18....., Hans Wilhelm Pálsson Paulson, f. 14. ágúst 1857 í Hallfríðarstöðum, d. 25. apríl 1935(Hans sagður dáinn 1933 skv. Skagfirzkum æviskrám 1850-1890 VI, bls. 266), fluttist til Vesturheims 1883, síðar fylkisþingmaður í Regina. (Jónína var önnur kona Wilhelms. Fyrsta kona hans (1880) var Þóra Jónsdóttir, f. 1860, d. 1882, en þriðja k.h. var Anna Kristín Nikulásdóttir,   For.: Páll Erlendsson, bóndi í Glæsibæ og á Vindheimum í Glæsibæjarhr., á Hallfríðarstöðum í Hörgárdal, Eyjaf., á Hraunum í Fljótum, á Arnarstöðum í Sléttuhlíð og á Hofi í Hjaltadal, Skag., síðast til heimilis á Oddeyri á Akureyri, f. 11. jan. 1813, d. 26. júlí 1891, og seinni k.h. Guðrún Magnúsdóttir, húsfreyja, f.1827, d. 1879.(Guðrún fædd á Bjarnastöðum í Blönduhlíð, en dáin á Hofi í Hjaltadal.) Börn þeirra: a) Þóra, f.188...., b) Margrét, f. 1. des. 1890, c) Hilda, f. 1891-1892.

4a Þóra Hansdóttir Albert, f. Paulson, húsfreyja í Tacoma í Washingtonfylki í Bandaríkjunum. - Maki: William Alfred Kristjánsson Albert, f. 30. júlí 1887 , verslunarmaður. For.: Kristján Kristjánsson, bóndi á Látrum á Látraströnd, S-Þing.,

4b Margrét Hansdóttir Thorvaldsson, f. Paulson, f. 1. des. 1890 í Kanada, húsfreyja í Saskatoon í Saskatchewan í Kanada. - Maki: 16. maí 1923, Þorbergur Þorvaldsson Thorvaldsson, f. 24. ágúst 1883 í Ytri-Hofdölum í Blönduhlíð, d. 4. okt. 1965 í Kanada, Ph.D., prófessor við University of Saskatchewan For.: Þorvaldur Þorvaldsson, bóndi á Dúki í Sæmundarhlíð, á Rein í Hegranesi og í Ytri-Hofdölum í Skagafirði, síðar í Víðidalstungu í Árnesi á Nýja-Íslandi í Kanada, f. 30. júlí 1842, d. 6. mars 1931, og k.h. Þuríður Þorbergsdóttir, húsfreyja, f. 8. jan. 1838, d. 6. júlí 1921. Barnlaus.

4c Hilda Hansdóttir Paulson, f.1891 í Kanada, d. 9. apríl 1909 í  Winnipeg í Kanada.

Forsíða